Uppselt á landsleik þrátt fyrir neikvæða umfjöllun um KSÍ

Uppselt er á landsleik Íslands og Rúmeníu á Laugardalsvelli á morgun, samkvæmt vefsíðu tix.is. Þetta er fyrsti heimaleikur karlalandsliðsins í undankeppni HM 2022.

Knattspyrnusamband Íslands hefur fengið mikla neikvæða umfjöllun undanfarið en þau eru talin hafa þaggað alvarleg brot landsliðsmanna. Formaður stjórnar KSÍ sagði upp á dögunum og öll stjórnin stuttu seinna. Margir hafa kallað eftir því að framkvæmdarstjórinn segi líka af sér en hún fór í leyfi fyrr í dag.