Uppsagnir: dapur dagur á tálknafirði

\"Þetta er reiðarslag fyrir samfélög þegar svona gerist,“ segir Indriði Indriðason, sveitastjóri Tálknafjarðar í ljósi uppsagna á öllum 26 starfsmönnum sjávarútvegsfyrirtækisins Þórsbergs á Tálknafirði í gær.

\"Við erum að funda með stjórnarmönnum Þórsbergs og sjá til hvernig þetta verður,\" segir hann við fréttavefinn visir.is og bætir þar við: \"Við þurfum að sjá nákvæmlega hversu margar stöður þetta eru og hvernig áhrif þetta gæti komið til með að hafa á sveitarfélagið og rekstur þess og hvernig taðstoða megi það fólk sem lendir í þessu,“ segir Indriði.

Hann segir að starfsemi Þórsbergs hafi bein eða óbein áhrif á rúmlega áttatíu prósent bæjarbúa Tálknafjarðar: \"Það er ekki hægt að yfirfæra þetta á höfuðborgarsvæðið því að það er ekkert fyrirtæki sem er þar með álíka áhrif og hér,“ segir hann við vefinn, en er þó ekki bugaður: \"Það eru þó önnur atvinnutækifæri sem bjóðast fólki hér,“ segir Indriði og bendir á að þrátt fyrir þessar agalegu fregnir hafi mikil uppbygging átt sér stað á Tálknafirði og í Vesturbyggð í tengslum við fiskeldi, þar séu tækifæri.