Uppruni níu eldislaxa rakinn til arnarlax

Í upprunagreiningu Hafrannsóknastofnunar á strokulöxum, í samvinnu við MAST og Matís, kemur fram að alls virðast hafa veiðst tólf eldislaxar. Þar af voru ellefu greindir en einn var enn í mælingu þegar greint var frá niðurstöðum. Hægt er að rekja níu af ellefu greindum eldislöxum til tveggja kvíastæða Arnarlax.

Kvíastæðin tvö sem um ræðir eru í Laugardal í Tálknafirði og Hringsdal í Arnarfirði. Í greiningu stofnunarinnar kemur fram að tilkynnt hafi verið um þrjú atvik sem stemmi við þessar staðsetningar og að svo virðist sem allir fiskarnir hafi komið úr tilkynntum strokum. Arnarlax tilkynnti atvik/strok í Hringsdal í Arnarfirði þann 21. febrúar á síðasta ári og tvö atvik í Laugardal í Tálknafirði, annað í febrúar og hitt í júlí á þessu ári.

Einnig er greint frá því að af þeim ellefu eldislöxum sem hafa verið greindir er eins og áður segir hægt að rekja níu með vissu, eitt sýni þurfi að endurkeyra með nýju erfðasýni til að fá afgerandi staðfestingu og einn fisk, sem veiddist í Breiðdalsá, þurfi að skoða frekar og er hugsanlegt að hann hafi komið annars staðar frá.