Nú þegar rannsóknarefnd Alþingis hefur skilað forseta Alþingis skýrslu um sölu Búnaðarbankans er eitt og annað rifjað upp. Lesa má Borgarnesræðu ingibjargar Sólrúnar GÍsladóttur í nýju ljósi til að rifja upp hvað hún taldi valda fjármálamenn eiga undir högg að sækja sökum neikvæðrar umfjöllunar nafngreindra stjórnmálamanna um umsvif þeirra.
Vilhjálmur Bjarnason alþingismaður skrifar í dag grein í Morgunblaðið um sína aðkomu að sölu Búnaðarbankans. Hann velur sem yfirskrift greinarinnar \" Skúrkar kaupa banka.\"
Vilhjálmur segir í greinarlok: \"Með því að láta viðgangast viðskiptatilburði eins og viðhafðir voru með Búnaðarbanka Íslands hf. megnun við hvorki og sigla né versla. Þess vegna eignumst við aldrei peninga. Þess vegna verðum við ekki aðeins kúguð þjóð heldur einnig þjóð í lífsháska.\"