Sala á hlut ríkisins í Arion banka hf verður rædd í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Nefndin áformar að funda um málið á morgun þriðjudag. Þar munu starfsmenn Fjármálaeftirlitsins (FME) ræða við nefndarmenn um sölu á hlut ríkisins.
Fyrir nokkru var sagt frá því að FME hefði með óformlegum hætti bent einum kaupenda á hlut ríkisins - vogunarsjóðnum Och-Ziff Capiltal - að óvíst sé að þessi sjóður verður samþykktur af FME sem virkur eigandi í Arion banka hf.
Hlutverk FME er að standa vörð um traust á og um heilbrigði íslenska fjármálamarkaðarins. FME er sjálfstæð eftirlitsstofnun með sérstaka stjórn. FME hefur það hlutverk að meta hæfi virkra eigenda að íslenskum fjármálafyrirtækjum.
Heimildum HRBR ber ekki saman um hverjar verða lyktir þessa máls en þó eru þeir fleiri sem segja HRBR að sjóðnum verði heimilað að verða virkur eigandi.
rtá