Upplýsingar um laun þingmanna á netið

Nú geta allir séð upplýsingar um laun þingmanna og kostnaðargreiðslur til þeirra. Upplýsingarnar liggja fyrir á vef Alþingis þar sem skoða má laun hvers þingmanns, allar fastar greiðslur og hvað viðkomandi hefur fengið endurgreitt fyrir útlagðan kostnað.

Á vefnum er hægt að smella á einstaka kostnaðarþætti, t.d. húsnæðis- og dvalarkostnað, fastan ferðakostnað í kjördæmi og fastan starfskostnað.

Ekki eru allar greiðslur til þingmanna komnar á vefinn, á næstu vikum er áætlað að birta líka upplýsingar um breytilegar greiðslur t.d. vegna ferðakostnaðar. Eins er gert ráð fyrir að síðar verði einnig birtar upplýsingar um eldri greiðslur til þingmanna um áratug aftur í tímann.

Upplýsingasíða Alþingis