Upplýsingar daglega um fundi ráðherra

Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að ráðherrar ríkisstjórnar birti yfirlit úr dagbókum sínum frá og með deginum í dag. Við undirbúning málsins var leitað fyrirmynda einkum á Norðurlöndum og í Bretlandi. Í tilkynningu forsætisráðuneytisins segir að það sé háð mati hvers og eins ráðherra hversu miklar upplýsingar verða birtar um dagskrá hverrar viku. Þó er gert ráð fyrir að upplýsingar birtist um formlega fundi sem boðað er til með dagskrá eða þar sem ráðherra tekur á móti fulltrúum félagasamtaka og stofnana, formlega hádegisverði, viðburði þar sem ráðherra heldur erindi eða ávarp, fundi með fulltrúum erlendra ríkja og stærri viðtöl við fjölmiðla sem ákveðin eru með nokkrum fyrirvara.

Dagbækurnar má finna á undirsíðu undir hverjum og einum ráðherra á vef Stjórnarráðsins.

Opnun á ýmsar upplýsingar um stjónmálamenn, sem áður lágu ekki fyrir, gerir nú til dæmis kleift að sjá mánaðarlegar greiðslur um ferðakostnað Alþingismanna. Í dag kom þannig í ljós að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk greiddar um 600 þúsund krónur í aksturskostnað í janúar og Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, rúmlega 470 þúsund.