Þingmennirnir Róbert Marshall og Birgitta Jónsdóttir eru fyrstu flutningsmenn frumvarps Bjartrar framtíðar og Pírata til heildarlaga um miðlun upplýsinga og vernd uppljóstrara. Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að uppljóstrarar njóti bæði efnahaglegrar og félagslegrar verndar sem og verndar gegn málsóknum. Gerður er greinarmunur á svokölluðum innri og ytri uppljóstrunum, en skilyrði fyrir ytri uppljóstrun, þ.e. uppljóstrun til fjölmiðla, er að efnið sem miðlað er eigi erindi til almennings.
Í greinargerð með frumvarpinu segir meðal annars:
Í íslensku þjóðfélagi hafa uppljóstrarar einnig gegnt mikilvægu hlutverki við að koma upplýsingum um misgerðir sem varða almannahagsmuni á framfæri. Þess konar mál koma reglulega til umræðu í þjóðfélaginu fyrir tilstilli fjölmiðla. Slík mál geta átt brýnt erindi til almennings en minna hefur þó farið fyrir umfjöllun um afleiðingar umfjöllunarinnar fyrir þann sem miðlaði upplýsingunum til fjölmiðla, þ.e. fyrir uppljóstrarann. Algengt er að þar hafi verið um að ræða starfsmann hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar eða mann með öðrum hætti nátengdan þeirri starfsemi sem upplýsingarnar varða í hvert sinn. Einnig er mjög algengt að starfsmaður sé látinn gjalda fyrir uppljóstrunina, svo sem að hann missi í kjölfarið starf sitt.