Fjandans stjórnin er að eyðileggja...

Andri Snær Magnason rithöfundur segir að við gætum glatað ómetanlegum verðmætum ef við sofum á verðinum, erum hlutlaus og látum stjórna okkur. Þá væri hægt að draga okkur í hvaða átt sem er. \"Ef við höfum enga stefnu - þá markar einhver annar stefnuna.\"

Andri Snær segist hafa heyrt dæmi um að barátta hans fyrir náttúruvernd hafi kallað á úlfúð en miklu oftar hafi baráttan leitt af sér jákvæð viðbrögð. Hann hefur verið þýddur yfir á 35 tungumál, hann er m.a. höfundur Draumlandsins og í hópi leiðandi náttúruverndarsinna. Næsta ár eru 10 ár liðin frá útkomu Draumlandsins.

Andri Snær segir að ein ástæða þess að hann hafi ekki mætt miklu aðkasti eftir að hann hóf gagnrýni sína gegn virkjanastefnu og ráðandi öflum sé hve vel hann hafi undirbúið sig fræðilega áður en hann skrifaði Draumalandið. Krafa hans er að hálendið verði friðað.

Andri Snær verður gestur fréttaskýringarþáttarins Kvikunnar á Hringbraut í kvöld, þáttar í umsjá Björns Þorlákssonar. Ofangreint kemur fram í þættinum þar sem spurt verður hvaða sigrar og fórnir fylgi því að standa gegn meginstraumi í landi þar sem t.d. verkfræðingar eru ekki frjálsir að skoðunum sínum vegna atvinnuhagsmuna eins og  rætt verður í þættinum.

Rithöfundurinn lýsir af hispursleysi þegar honum varð svo ofboðið vegna fyrirætlana stjórnvalda að stórskemma náttúru Íslands að ýmis orð um ríkisstjórnina voru farin að læða sér í gegnum uppkast að barnabók sem hann var að skrifa. \"Fjandans ríkisstjórnin er að fara að eyðileggja fallegustu staðina á landinu!\" Sjá má brot úr þætti kvöldsins hér.

Segist höfundurinn ekki sjá eftir neinu þótt mögulegt sé að líf hans hefði orðið með öðrum hætti ef hann hefði ekki markað sér braut með andófsöflum. Hann sjái alla kosti fremur en galla við aktívisma. Brýnir rithöfundurinn þjóðina til að taka afstöðu og beita sér í málum.

Blaðamannafundinn með Björk Guðmundsdóttur söngkonu ber einnig á góma í þættinum sem og nýlegar skærur Andra Snæs við Húsvíkinga svo nokkuð sé nefnt.

Kvikan er sýnd á mánudagskvöldum klukkan 21.30 og endursýnd kl. 23.30. Þáttum sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar er einnig hægt að ná í gegnum vefsíðuna hringbraut.is og tímaflakk. Efni stöðvarinnar býðst áhorfendum að kostnaðarlausu.