Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs reyndi nýverið að kalla inn varaþingmann fyrir Rósu Björk Brynjólfsdóttur, þingmann flokksins, án samþykkis hennar.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu þí dag, en þar er haft eftir Bjarkey að samskipti innan þingflokksins séu stirð. Ekki hafi ástandið batnað eftir að Rósa Björk og Andrés Ingi Jónsson, annar þingmaður flokksins hafi stutt vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á hendur Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra: \"Það er óhætt að segja að samskiptin séu erfið innan þingflokksins,\" ssegir Bjarkey við blaðið. Tilraun verði þó gerð til að bæta andrúmslofti innan þingflokksins á fundi hans í næstu viku.