Meðan þingmennirnir Ásmundur Friðriksson og Óli Björn Kárason, sem báðir sitja á þingi í nafni Sjálfstæðisflokksins, sjá fyrir sér nýjar Alþingiskosningar í vor, er Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingkona Vinstri grænna, annarrar skoðunar.
„Ég verð að segja mína persónulegu skoðun. Mér finnst ekki tímabært að tala um kosningar aftur í vor. Það finnst mér ekki rétt miðað við stöðuna núna og það sé ekki rétt að velta því upp sem raunhæfum möguleika. Við getum velt fyrir okkur öðrum möguleiku, til dæmis minnihlutastjórnum. Best væri að fólk kæmi sér saman um hlutina og myndaði hér ríkisstjórn,“ sagði Rósa Björk.
„Ég sé fyrir mér að það verði mynduð minnihlutastjórn eða starfsstjórn fram að þeim tíma sem kosið verður. Sú stjórn vinni þá í brýnustu málum og svo verði kosið aftur. Mér finnst þetta alls ekki óraunhæft,“ sagði Ásmundur Friðriksson í sama hætti og Óli Björn var svipaðrar skoðunar.
-sme