Uppgangur í færeyjum

Laxeldi  er ein stærsta atvinnugrein Færeyinga og nemur útflutningsverðmæti þess 45% af heildarútflutningi landsins.  Þó svo að laxeldi hafi oft átt erfitt uppdráttar á Íslandi gengur það mun betur í Færeyjum og má sjá laxeldiskvíar víðsvegar inn á fjörðum þegar ekið er um eyjaklasann. Ástæða fyrir þessu góða gengi laxeldis í Færeyjum er einkum sjávarhitinn sem fer ekki niður fyrir 6 gráður á kaldasta tíma ársins og þar munar strax um 2-3 gráður m.v. það sem þekkist við Íslandsstrendur.  Einnig eru Færeyingar mjög strangir þegar kemur að reglum varðandi hreinlætismeðferð á sjávarfanginu til að hindra allar mögulegar sýkingar sem oft hafa valdið miklu tjóni í þessum iðnaði.

Um þetta verður fjallað í þættinum Atvinnulífið sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld.

Mikil náttúrufegurð umlykur eyjarnar með ýmsum hætti og þar er mikið fuglalíf.  Einnig er sauðkindin alls staðar því hún er ekki rekin á fjall eins og gerist á Íslandi heldur gengur sjálfala og oft má sjá kindur við húsgarða fólks, einkum í litlum þorpum víðs vegar um eyjarnar. Í Færeyjum búa rétt tæplega 50 þúsund manns og þar af um helmingur á Þórshafnarsvæðinu.  Aðrir íbúar dreifa sér um allar eyjar í litlum bjæum og þorpum, ekki ósvipað og á Íslandi. 

Fjallað verður um laxeldið og starfsemi Faroe Ship, í þættinum Atvinnulífið  á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 20.30. Faroe Ship er eins konar óskabarn Færeyinga, stofnað árið 1919 skömmu eftir stofnun Eimskipafélagsins sem fagnaði 100 ára afmæli fyrir tveimur árum.

Sigurður K. Kolbeinsson stýrir þættinum.