Valgerður Gunnarsdóttur alþingismaður uppfærði hagsmunaskráningu sína á vef Alþingis eftir frétt Stundarinnar á dögunum um ívilnun sem hún nýtur af hálfu ríkisins húsnæðislega.
Þetta kemur fram í frétt Stundarinnar í dag.
Valgerður greiðir samkvæmt frétt Stundarinnar 34.568 krónur á mánuði í leigu fyrir skólameistarahúsið á Laugum. Þingmaðurinn leigir af Framhaldsskólanum á Laugum sem greiðir á bilinu 740 til 780 krónur til Ríkiseigna fyrir fermetrann. Valgerður gerði sem fyrrverandi skólameistari fimm ára samning um þetta við ríkið áður en hún fór á þing en hún er nú í leyfi. Nýr skólameistari hefur síðan verið skipaður við Laugaskóla.
Eftir því sem Stundin segir gefur skólinn skólameistaranum samkvæmt því um helmingsafslátt af leigunni. Margrét Hólm Valsdóttir, formaður skólanefndar Framhaldsskólans á Laugum, segist í samtali við Stundina ekkert vita um leigumálin.
„Þingmaðurinn uppfærði hagsmunaskráningu sína á vef Alþingis eftir fyrirspurn Stundarinnar um þriðjungseignarhlut eiginmanns hennar í rekstrarfélagi Húsavík Guesthouse sem rekur gistiheimili í íbúðarhúsi þeirra hjóna á Húsavík. Aðrir eigendur eru synir þeirra hjóna, Örlygur Hnefill og Gunnar Hnefill. Nú er því haldið til haga að þingmaðurinn er eigandi hússins ásamt eiginmanni sínum og leigir húsið undir reksturinn,“ segir í frétt Stundarinnar.
Þá spurði Stundin Valgerði um leigutekjur hennar af íbúðarhúsinu á Húsavík. „Í skriflegu svari sonar hennar, Örlygs Hnefils Örlygssonar, kemur fram að meðalleiga á mánuði á árinu 2015 er 110.417 krónur. Á árinu 2014 greiddi félagið rúmlega 115 þúsund krónur á mánuði. Á árunum 2011-2013 var leigan á bilinu 4.000-27.000 krónur á mánuði. Engin greiðsla var árið 2010.“
Í ítarlegu svari Örlygs Hnefils til Stundarinnar kemur fram að móðir hans komi ekkert að rekstri gistiheimilisins umfram það að fá greidda leigu.