Framkvæmdir eru nú að hefjast á Austurhafnarsvæðinu fyrir austan Tollhúsið. Bílastæðum bílastæðasjóðs á svæðinu verður því lokað frá og með fimmtudeginum 23. apríl. Svæðið sem um ræðir er fyrir austan Tollhúsið en þar hafa verið 198 bílastæði. Bílastæðasjóður bendir á nærliggjandi bílastæði á Miðbakka, í bílastæðahúsunum í Kolaport og í Hörpu.
Framkvæmdaleyfi hefur verið veitt fyrir fornleifauppgreftri á svæðinu. Að honum loknum mun reiturinn fara í uppbyggingu og byggjast upp á næstu þremur árum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg í dag. Þar segir að samkvæmtgildandi deiliskipulagi fyrir reitinn megi byggja íbúðir og skrifstofuhúsnæði á reitnum, alls 21.400 fermetra ofanjarðar. Verslun og þjónusta verði á jarðhæðum, en göngugata verði í gegnum svæðið frá Lækjartorgi að Hörpu.
Þá verður bílastæðakjallari undir reitnum og mun hann síðar tengjast bílakjallara undir reitum 5 og 6 á Austurhafnarsvæðinu, hinum megin við Geirsgötu og bílakjallara Hörpu.