Uppbygging hafin á lóð landspítalans

Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra tók í dag fyrstu skóflustunguna að sjúkrahóteli á lóð Landspítalans við Hringbraut og skrifaði jafnframt undir samning við verktakann LNS SAGA um smíði þess.

Sjúkrahótelið, sem staðsett verður á norðurlóð spítalans, milli Kvennadeildar, K-byggingar og Barónsstígs verður fyrsta nýbygging Landspítalans við Hringbraut og verður tekin í notkun árið 2017. Þar verða 75 herbergi. 

Sjúkrahótelið, sem er kjallari og fjórar hæðir mun tengjast Barnaspítala Hringsins og Kvennadeild með tengigangi í kjallara, en alls verður byggingin rösklega 4,000 fermetrar að stærð.

Kostnaður við smíði hússins er áætlaður nærfellt tveir milljarðar króna.

Í tilkynningu frá spítalanum í dag segir að með tilkomu sjúkrahótelsins muni aðstaða fyrir sjúklinga og aðstandendur breytast mikið til batnaðar, m.a. fyrir íbúa úti á landi og treysta spítalann í sessi sem þjóðarsjúkrahús.