Uppbygging: akranes breytir um svip

Akraneskaupstaður hefur samið við ASK arkitekta um deiliskipulagningu á Sementsreitnum í bænum, en það er gamla athafnasvæði Semnetsverksmiðju ríkisins.

Akranes-kaupstaður tók við svæðinu í árslok 2013 og ætlar að nýta það fyrir íbúðabyggð og þjónustu auk  hafntengdrar starfsemi. Verkefnið verður unnið í nánu samráði við Faxaflóahafnir, enda er hluti skipulagssvæðisins í eigu þeirra. 

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri segir þetta mjög stórt verkefni, enda skipulagssvæðið alls um 75 þúsund  fermetrar: \"Sementsreiturinn sjálfur er 55 þúsund fermetrar og svo nær skipulagið yfir Faxabrautina meðfram honum og einnig yfir hluta hafnarsvæðisins. Ásýnd strandlengjunnar á Akranesi mun taka miklum breytingum með uppbyggingunni þarna.“ 

Páll Gunnlaugsson, framkvæmdastjóriASK arkitekta segir verkefnið áhugavert og óvenjulegt í ýmsum skilningi: \"Hönnunarreiturinn er á sögulegu svæði og þar er eitt helsta kennileiti Akraness. Það er tímanna tákn að leggja niður verksmiðju miðsvæðis í bæjarsamfélagi og skipuleggja landið til annarra nota. Akraneskaupstaður sýnir hér mikinn metnað fyrir sína hönd og íbúanna og fyrir okkur hönnuðina er verkefnið bæði ögrandi og spennandi.“ 

Gert er ráð fyrir að verkefnið hefjist á skipulagslýsingu og svo taki hin eiginlega skipulagsvinna við í maímánuði og drög að skipulagi verði kynnt almenningi síðsumars. Endanleg skipulagsgögn skulu liggja fyrir í september og þá verður skipulagið auglýst. Öllu ferlinu á að ljúka fyrir áramót. 

 

.