Æ fleiri landsmenn þykjast sjá samsvörun með fréttaflutningi þessa dagana og fyrir hrun. Þar er bæði nefnt til sögunnar ódýrt vinnuafl sem m.a. var notað við að reisa Kárahnúkavirkjun en ber nú uppi nýbyggingaframkvæmdir og hluta ferðaþjónustu. Þá er ýmis lúxus og bruðl orðinn að veruleika sem a.m.k. betur stæðir borgarar leyfa sér. Þykir sumum nóg um.
Lára Hanna Einarsdóttir fjallar um þetta á facebook og vísar til innslags í Íslandi í dag sl. fimmtudagskvöld.
\"Mér er farið að bregða æ oftar við ýmsan fréttaflutning sem minnir mjög óþægilega á fyrirhrunsæðið sem kristallaðist í árinu 2007. Þrælahald í ýmsum starfsgreinum, kranafjöldinn, lúxus-hitt og þetta og ótalmargt fleira. Ísland í dag í kvöld var þessu marki brennt. Minnti á eyðsluæðið og ofgnóttina sem birtist í einkaþotum og -þyrlum, geðveiku peningaspreði, milljón króna vínflöskum og ýmsu öðru,\" segir Lára Hanna og fleiri taka undir.
Í athugasemdum við færslu Láru Hönnu, sem haldið hefur uppi samfélagsgagnrýni um langt árabil, segir Marggrét Sigurðardóttir að árshátið Samherja hafi farið fram í síðustu viku. \"Þar var sérstakt flug frá skrifstofum fyrirtækisins erlendis og einkaþotur með uppana. Þeir hafa efni á þessu og borga arð, sem aldrei er af fyrirtækjum hér bara þessum sem selja fiskinn okkar gegnum fyrirtækin úti, en geta ómögluega borgað veiðigjald til þjóðarinnar því þeir eru alltaf á hausnum samkv. skatti.\"
Einn spyr á þræði Láru Hönnu hvort það sé korter í gullát.