Uppáhalds hjá Kaju – Ómótstæðilega ljúffeng grafin gæs með jólarauðlaukssultu Kaju og piparrótarsósu sem tryllir bragðlaukana

Nú styttist óðum í jólin og allir eru í óða önn að undirbúa hátíðarhöldin. Jólamaturinn spilar stórt hlutverk yfir hátíðarnar og tímarnir hafa breyst og nýir siðir og hefðir koma með nýjum kynslóðum bland við þá eldri.  Sjöfn Þórðar heimsótti Karenu Jónsdóttur, sem ávallt er kölluð Kaja, upp á Skaga þar sem mörgum leikur forvitni að vita hvort hægt er að velja hollari leið þegar kemur að því að snæða hátíðarmatinn.  Mikil köllun hefur verið eftir hugmyndum af hollum og lífrænum hátíðarmat og þá er lag að líta til Kaju og fá hugmyndir.  Kaja leggur sig fram við að vera með lífrænan mat og rekur Matarbúr Kaju sem er heild­sala, versl­un og líf­rænt kaffi­hús sem hef­ur að geyma marg­ar þær bestu kök­ur og kræs­ing­ar sem finn­ast hér á landi. Hennar regl­a er ein­föld þegar kemur að vöruvali: all­ar vör­ur eru líf­ræn­ar, um­hverf­i­s­væn­ar og gæðin í há­marki. Kaja trú­ir því staðfast­lega að við séum það sem við borðum.

Heldur þú í hefðir í jólaundirbúningnum og um jólin?

Nei, það er ekki hægt að segja að ég geri það lengur, jólaundirbúningurinn hefur breyst ansi mikið hjá mér og þá sérstaklega eftir að börnin urðu fullorðin og ég stofnaði fyrirtækið Kaja organic. Í dag er jólaundirbúningurinn á allt öðrum grunni heldur var, hér áður fyrr gerði ég rauðkál og rauðlaukssultu fyrir mig og mína nánustu en nú er ég að gera þetta fyrir mun fleiri ef svo má að orði komast því rauðlaukssultan er komin í verslanir á höfuðborgarsvæðinu og hægt að fá rauðkálið í verslunnni minni hér á Skaga.“

Hefur eitthvað breyst í þínum matarvenjum og matargerð um hátíðarnar sem áður var eftir þá vitundarvakningu sem orðið hefur um hráefni og aðföng?

„Það hefur orðið mikil breyting á mínu jólahaldi, hér áður fyrr vorum við með reyktan svínahamborgarahrygg á aðfangadag og svo hangikjöt á jóladag. Í seinni tíð hef ég horfið frá svo þungum mat og reyni frekar að vera með eitthvað léttara kjötmeti en að auki hef ég hnetusteikina mína á boðstólnum,  sem sagt tvíréttað.“

Getur þú gefið okkur góð ráð hvernig við getum hugað vel að því að borða lífrænt og hollt um hátíðarnar?

„Besta ráðið er að lesa innihaldslýsingar, mín regla er sú ef ég þekkir ekki innhaldsefnið eða ég veit að það er iðanaðarframleiðsla þá sleppa að kaupa. Einfalda reglan er að velja lífræn vottað  því öll iðnaðarframleidd aukaefni eru bönnuð í lífrænni framleiðslu.  Í því fellst hollustan að borða það sem náttúran skaffar.“ 

Þurfum við nokkuð nauðsynlega að fara alla leið í sukkið eins og sagt er gjarnan?

„Nei, það er ekki þörf á því, það er til svo æði margt sem er hrikalega bragðgott en jafnframt hollt eða í hollari kantinum. Besta dæmið eru tertunar mínar sem eru Vegan, Raw og glúteinlausar unnar úr hnetum, fræjum og þurrkuðum ávöxtum hrikalega góðar og fullar af næringu. Ananas kókos er virkilega fersk og góð sem eftirréttur eða millimál.“

Hver þinn uppáhalds drykkur um hátíðarnar?  

„Ætli piparkökulatte sé ekki það sem stendur upp úr og eitthvað sem er bara í boði um hátíðarnar.“

Er hægt að fá sér lífrænt og hollt heitt súkkulaði?

„Já, það er vel hægt og hef ég í gegnum tíðna gert þrjár mismunandi útgáfur af heitu súkkulaði og fer það eftir því fyrir hvern ég er að búa það til. Til dæmis þegar ég laga Fjölskyldukakóið nota ég 70% lífrænt súkkulaði og hita það upp í mjólk frá Biobú.  En þar sem mjólkin er ekki fitusprengd þá verður áferðin svo silkimjúk.“

Kaja gerir líka aðra tegund sem hún hefur gefið nafnið Mitt heita súkkulaði.

„Mitt heita súkkulaði sem ómótstæðilega ljúffengt.

Þá nota ég um það bil 30 gröm af 100% súkkulaði út í góða haframjólk, en haframjólkin er mjög sæt og hentar því vel með 100% súkkulaði.“

Loks er það Döðlukakóið hennar Kaju sem slær öllu við.  „Það er algjört gúmmulaði en þar nota ég fjórar mjúkar döðlur set þær í blandara með einum bolla af volgri mjólk. Þegar döðlurnar eru vel maukaðar þá er döðlumaukið sett í pott ásamt tveimur matskeiðum af kakó og öðrum bolla af mjólk. Dass af salti og síðan hitað að suðu og þá er gúmmulaðið mitt klárt,“ segir Kaja er hin stoltasta af þessari blöndu.

Átt þú þinn uppáhalds hátíðarmat um jólin sem þú ert til í að deila með okkur og gefa okkur uppskriftina?

„Mitt uppáhald er áramóta naslið okkar sem samanstendur af grafinni gæs, rauðlaukssultu og piparrótarsósu.  Kiddi minn sér alltaf um að grafa gæsina en ég sé um rauðlaukssultuna og piparrótarsósuna. En þar sem rauðlaukssultan þykir svo góð þá fór hún í framleiðslu og er komin í verslanir Hagkaups, Melabúð, Fjarðarkaup og Matarbúr Kaju, en ég læt hana flakka hérna. Það sem gerir sultuna svona sérstaklega góða eru gæðin á Balsamikedikinu sem ég nota en það kemur frá franska fyrirtækinu Vigean.“

Hvað finnst þér skemmtilegast við jólahátíðina?

„Róin sem skapast þegar klukkan slær sex á aðfangadag.“

Meðfylgjandi eru uppskriftirnar hennar Kaju af Kaju rauðlaukssultunni og Piparrótarsósunni að hætti Kaju sem er ómissandi með grafinni gæs. 

Kaju rauðlaukssultan

1 kg lífrænn rauðlaukur

250 ml balsamik edik frá Vigean

250 g pálmasykur

2 msk. olía

¼ tsk. sjávarsalt

Laukurinn gróf saxaður og gljáður í heitri olíu í potti, balsamikedik og pálmasykur sett í pottinn og lokið sett á og soðið saman í um það bil 20 mínútur. Hært í annað slægið. Eftir 20 mínútur er lokið tekið af og soðið áfram í aðrar 20 mínútur eða þar til laukurinn er temmilega meir.  

Piparrótarsósa Kaju

1 dós sýrður rjómi

2 -3 msk. hunang

Röspuð piparrót 1 til 4 msk. fer eftir smekk á styrkleika

Hrærið vel saman og smakkið til.

Gleðilega hátíð og njótið lífsins lifandi.