Það ætlaði allt um koll að keyra á Alþingi í kvöld þegar rætt var um breytingartillögur umhverfis og samgöngunefndar á samgönguáætlun en fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu meirihlutann á þingi um að vilja keyra samgönguáætlunina í gegn á Alþingi fyrir jólafrí án nokkurs samráðs við stjórnarandstöðuna.
Þingmenn komu hver á fætur öðrum í pontu Alþingis í kvöld undir liðnum fundarstjórn forseta og sitt sýndist hverjum.
„Enn og aftur verðum við vitni að því hér á þinginu að undir lokin stendur til að keyra í gegn stórt, flókið, vandasamt og veigamikið mál,“ segir Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar sem telur ríkisstjórnina vera að setja upp sýningu á afli.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018181219711