Unnur tekur upp hanskann fyrir Maríu Ólafs: Vá hvað það hlýtur að vera þreytandi

Unnur Eggertsdóttir, söng- og leikkonan, tekur upp hanskan fyrir Maríu Ólafsdóttur sem keppti fyrir hönd Íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, árið 2014 í færslu á Twitter.

Í færslunni kemur Unnur inn á umræðuna að María hafi í átta ár þurft að heyra umræðu um að hún hafi átt að tapa í undankeppninni á kostnað Friðriks Dórs Jónssonar.

„Getum við sem þjóð hætt að vera svona passive aggressive við Maríu Ólafs? Vá hvað það hlýtur að vera þreytandi að heyra ennþá ÁTTA ÁRUM seinna að þú hefðir átt að tapa,“ segir í færslu Unnar.