Unnur brá hugleiðir varaformennsku

Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður  segist enn vera að hugleiða framboð til varaformennsku á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í lok mánaðarins.

Hún var meðal gesta í þætti Páls Magnússonar, Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld. Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, sessunautur Unnar í þættinum, sagði að það væri ágætt að hreinsa út deilurnar sem hafa verið flokknum um afdrif stjórnarskrármálsins, aðspurð um ásakanir Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi formanns flokksins um að arftaki hennar hefði klúðrað því máli.

Í þættinum ræddir Páll einnig við Guðna Ágústsson um meinta hægrislagsíðu Framsóknarflokksins nú um stundir og stjórnmálaástandið í landinu, en þar er Guðni þrútinn af reynslu svo ekki sé meira sagt.

Þáttinn má sjá í klippum á hringbraut.is og einnig þar í heild sinni.