Annars árs nemar í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík völdu sjónvarpsstöðina Hringbraut sem lokaverkefni sitt í stefnumótun og kynntu niðurstöðu af vinnu sinni í háskólanum í morgun.
Háskólafólkinu fannst upplagt að skoða ungt og framsækið fyrirtæki sem væri að koma sér fyrir á markaði og fyrir valinu varð Hringbraut, sem þá var aðeins nokkra vikna fámennt fyrirtæki með örfáa sjónvarpsþætti á dagskrá og vef í mótun. Vinnan hófst í byrjun mars með greiningu á innviðum fyrirtækisins sem þá voru næsta burðarlitlir og allir verkferlar lítt eða ekki reyndir.
Með skýrslunni sem þeir birtu í morgun er kynnt sú framtíðarsýn Hringbrautar að hún eigi að verða fyrsti kostur fólks sem vill sjá og heyra uppbyggilega og fræðandi samfélagsumræðu, en til þess þurfi stöðin að breikka áhorfendahóp sinn og höfða meira til yngra fólks með áhugaverðu efni á netinu sem gagnist því í starfi og leik.
Í skýrslunni kom fram að vörumerkið Hringbraut er þekkt á meðal 49,5% þeirra sem spurðir voru hvort þeir vissu af miðlinum. Stöðin er lítt þekkt í aldurshópnum 18 til 24 ára, en sá hópur virðist einfaldlega vera hættur að horfa á sjónvarp, en þess kunnari er miðillinn á meðal eldra fólks; 82% aðspurðra í aldurshópnum 45 til 54 ára þekktu til Hringbrautar og 94,7 í aldurshópnum 55 til 65 vissu hvað Hringbraut stendur fyrir.
"Það er auðvitað eins og hver önnur himnasending að fá svona áhugasama nemendur til að gera úttekt á nýja miðlinum okkar," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrárstjóri Hringbrautar sem fylgdist með skýrsluhöfundum flytja mál sitt í HR í morgun. "Það er okkur bæði dýrmætt og mikill heiður að fá þessa úttekt á starfsemi okkar. Við erum fáliðuð á Hringbraut og svona vítamínsprauta mun duga okkur lengi og vel," segir dagskrárstjórinn.