Unnu skemmdar­verk á styttunni af Kristjáni níunda: Mynd­band

Meðlimir í Stjórnarskrárfélaginu unnu skemmdarverk á styttunni af Kristjáni níunda Dana­konungi fyrir utan stjórnarráðið í dag.

Hægt er að sjá myndband frá gjörningnum hér fyrir neðan en öryggisverðir voru fljótir að grípa til aðgerða.

Hópnum tókst að mála hönd Kristjáns bláa en í yfirlýsingu frá félaginu eru aðgerðirnar útskýrðar.

„Kristján 9. Dana­kóngur var aftur­halds­samur og sýndi sjónar­miðum Ís­lendinga lítinn á­huga. Honum var um­hugað um völd danska ríkisins. Blá­máluð hönd hans er til að minna okkur á að stjórnar­skráin sem hann færði Ís­lendingum var ekki sú stjórnar­skrá sem lands­menn vildu og höfðu samið sér þegar árið 1851,“ segir í yfir­lýsingunni.

Þá stendur að blá­máluð hönd Kristjáns níunda eigi meðal annars að minna á að Ís­lendingar búi enn við danska stjórnar­skrá.

„Blá hönd and­lýð­ræðis­legra stjórnar­hátta, aftur­halds og sér­hags­muna er enn á lofti og heldur í krepptum hnefa dauða­haldi um úr­elta stjórnar­skrá sem kjós­endur hafa hafnað fyrir nýja. Bláu höndinni er um­hugað um auð sinn og völd og hún gefur lítið fyrir vilja al­mennings. Að þessu sinni hefur hún að­setur á Ís­landi en ekki í Kaup­manna­höfn,“ segir í yfir­lýsingunni. Verið sé að koma í veg fyrir að landsmenn eignist stjórnarskrá sem þeir sjálfir hafi samið sér.

„Nóg er komið af því. Vér mót­mælum öll!“ segir í yfir­lýsingunni.