Kísilmálmsmiðjan ekki ræst

Kísilmálmsmiðja United Silicon í Helguvík verður ekki ræst fyrr en lausn er fundin á ólyktarvandanum. Umhvefisstofnu er nú með tvær norskar stöðuskýrslur sem sérfræðingar stofnunarinnar skoða. Þessi skoðun sérfræðinganna tekur einhverja daga.

Stöðuskýrslurnar norsku geyma tillögur sem lúta að prufukeyrslu á ljósbogaofni kísilmálverksmiðjunnar. Verksmiðjan hefur ekki starfað frá því að eldur kom upp hinn 18.apríl síðastliðin. Umhverfisstofnun stöðvaði rekstur verksmiðjunnar vegna ítarlegrar ólyktar. Ofninn verður ekki ræstur fyrr en að gefnu leyfi og í samráði við stofnunina.

United Silicon er nánast tilbúið að hefja prófanir á gangsetningu á ný. Gerðar voru breytingar á búnaði og viðbætur gerðar á búnaði. Allt kapp er lagt á það af hálfu félagsins að fara ekki af stað fyrr en tryggt að að gagnsetning verksmiðjunnar valdi ekki óþægindum.

rtá

Nánar www.ruv.is  www.mbl.is  www.ust.is