Rúmlega tvítugur íslenskur karlmaður, sem er grunaður um að hafa framið hrottalegt morð í Bandaríkjunum, hefur verið úrskurðaður hæfur til að svara til saka í Kern sýslu í Kaliforníu.
Fjallað var um mál Daníels í íslenskum fjölmiðlum í ágúst í fyrra en þá hafði dómari kveðið upp úrskurð þess efnis að Daníel væri ekki hæfur til að réttað yrði yfir honum og að hann skyldi gangast undir meðferð hjá geðlækni á viðeigandi stofnun þangað til hann yrði metinn hæfur.
Nú hefur hins vegar verið boðað til fyrirtöku í máli Daníels síðar í þessum mánuði.
Fréttablaðið fjallar um mál Daníels í dag en blaðið ræddi við saksóknarann málinu, Joseph A. Kinzel, varahéraðssaksóknara Kern-sýslu, sem segir nýjan úrskurð hafa gengið í málinu í mars síðastliðnum og Daníel metinn hæfur til að svara til saka eftir meðferð hjá geðlækni.
Fórnarlambið fyrrverandi bekkjarsystir Daníels
Daníel á íslenskan föður og tékkneska móður, en flutti ungur með móður sinni til Kaliforníu-fylkis, nánar tiltekið til borgarinnar Ridgecrest í Kern sýslu.
Daníel dvelur nú í Lerdo-fangelsinu, sem er gæsluvarðhaldsfangelsi í Kaliforníu.
Daníel og fórnarlambið, Katie Pham, voru bekkjarsystkyn og voru rúmlega tvítug þegar morðið var framið í maí í fyrra. Daníel var handtekinn á vettvangi morðsins, í bílskúr við heimili stjúpföður síns. Í málskjölum kemur fram að Daníel hafi verið blóðugur á vettvangi þegar lögregla kom á vettvang og er hann sagður hafa sagt „ég drap hana“ við lögreglumenn sem komu á vettvang.
Hér má lesa umfjöllun Fréttablaðsins um málið.