Fjögur íbúasvæði glíma við fólksfækkun á Íslandi; norðausturhornið, Skaftafellssýslur, norðanverðir Vestfirðir og Húnavatnsssýslur en nú er svo komið að ástandið er allra verst á síðastnefnda svæðinu þar sem fækkun ungs fólks nemur 28,4% frá 1999.
Íbúum í Austur-Húnavatnssýslu hefur fækkað um 18,1% frá 1999 og er ástandið litlu skárra í vestursýslunni. Að því er fram kemur í nýrri skýrslu sem sveitarfélögin á staðnum hafa látið gera - og þykir í svartara lagi - er ástandið alvarlegast í yngsta aldurshópnum, en fólki upp að 18 ára aldri hefur fækkað sem fyrr segir um nálega 30% á undanliðnum 16 árum.
Ástæðu þess má öðru fremur rekja til einhæfs atvinnulífs og samdráttar í landbúnaði, en fjöldi bæja á svæðinu er kominn í eyði eftir að framleipslukvítar hafa safnast á færri hendur á stærri búum.
Arnar Þór Sævarsson sveitarstjóri Blönduósbæjar segir í samtali við Morgunblaðið í dag að frekari fólksfækkun sé yfirvofandi á svæðinu, en þar búa nú 1900 manns.
Fólksfjölgun er víðast hvar úti á landi, svo sem á vesturlandi, sunnanverðum Vestfjörðum, á Eyjafjarðarsvæðinu, á miðju Austurlandi, Supurlandi og Reykjanesi, en sem fyrr segir eiga fjögur íbúasvæði við fólksfækkun að stríða.