Ferðafélag Íslands hefur stofnað FÍ UNG, ferðafélag unga fólksins, sem hefur það að markmiði að hvetja ungt fólk á aldrinum 18-25 ára að kynnast landinu okkar betur, ferðast um og vera úti í náttúrunni.
Í tilkynningu frá hinu nýstofnaða félagi segir að FÍ UNG sé stofnað að norskri fyrirmynd, en þar í landi hefur DNT UNG orðið annað stærsta útivistarfélagið. Ferðafélag barnanna var stofnað fyrir sex árum, en Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands segir ferðafélag unga fólksins vera rökrétt framhald af þeirri viðleitni að ná til ungs fólks. FÍ UNG mun meðal annars standa fyrir fræðslu og námskeiðum á sérstökum helgarnámskeiðum í fjallaskálum Ferðafélags Íslands, þar sem farið verður yfir helstu atriði í fjallamennsku, líkt og góðan undirbúning; hvað á að vera í bakpokanum, hvernig á að raða í hann, hvernig á að tjalda og almennt að umgangast nátttúruna.
Stofnganga FÍ UNG verður næstkomandi fimmtudag þegar gengið verður á Úlfarsfell kl. 19 frá bílastæði skógræktarinnar við Vesturlandsveg.