Ungt fólk í lífshættu vegna smálána

Í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld, var rætt um smálán og innheimtur þeirra. Bryndís Þóra Jónsdóttir var meðal viðmælenda. Hún sagði að dóttir sín hefði farið að taka smálán árið 2012, þegar hún var 19 ára. Af þessum lánum vissu foreldrarnir ekki fyrr en allt var komið í óefni.
 
Þá skuldaði dóttirin hundruð þúsunda króna, sem Bryndís segir að foreldrarnir hafi reitt fram. Á þeim tíma var þó nokkur umræða um að starfsemi smálánafyrirtækjanna myndu leggjast af, með nýjum neytendalögum sem tóku gildi haustið 2013. Bryndís segir Alþingi alveg hafa brugðist í þessum efnum, enda sé ekkert lát á starfsemi þeirra. Hún segist sjálf vita um öryrkja og einstæðar mæður sem eru að taka þessi lán og enda í algjörum vítahring innheimtu.
 
Sjálf segir hún dóttur sína hafa lent illa í því þann 1.september síðastliðinn, þegar bankareikningurinn hennar var tæmdur vegna gamallar skuldar frá árinu 2012. Engin innheimtubréf voru send áður en skuldfærslan fór fram og því kom þetta dótturinni alveg í opna skjöldu, framfærsla mánaðarins hreinlega hvarf.
 
Þátturinn Ég bara spyr byggir á fyrirspurnum sem almenningur sendir til Spyr.is. Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Spyr.is og umsjónarmaður þáttanna, segir marga hafa sent inn erindi vegna smálána. Meðal annars hefur Spyr.is fengið erindi frá ungu fólki sem hefur sagst vera í sjálfsmorðshugleiðingum, vegna þess að það sér ekki fyrir endan á því að geta greitt lánin.
 
Algengt sé að fólk fari að taka smálán, til að greiða upp smálán og þannig fer boltinn að rúlla. Meðal fyrirspurna sem teknar eru fyrir í þættinum, er spurning frá ungum einstaklingi sem spyr hvort smálánaskuldir erfist til foreldra, ef viðkomandi tekur sitt eigið líf. Sigríður Laufey Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Creditinfo og áður sviðsstjóri hjá Umboðsmanni skuldara, mun svara þeirri fyrirspurn.
 
Í svari hennar kemur meðal annars fram að þau skilyrði sem fólk samþykkir á netinu hjá smálánafyrirtækjunum, telji 15 blaðsíður eða fleiri. Því sé ekki ólíklegt að fólk sé ekki að kynna sér það nægilega vel, hvaða skuldbindingar það er að samþykkja, áður en smálánið er tekið. Smálán eru lán sem nema hæst 20 þúsund krónum í senn og þau er hægt að fá allan sólahringinn, til dæmis með SMS. Þar sem lánin eru veitt í 30 daga og eru undir 10 milljóna króna viðmiðun, heyra þau ekki undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins.
 
Ég bara spyr er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 öll þriðjudagskvöld, en einnig er hægt að nálgast hann hér á hringbraut.is.