Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð rétt fyrir miðnætti vegna þriggja snjóflóða sem féllu á Vestfjörðum með stuttu millibili. Eitt flóðið féll í hlíðinni á móts við Suðureyri, tvö flóð féllu við Flateyri. Kröftug flóðbylgja fylgdi í kjölfarið.
Verið er að boða út alla viðbragðsaðila á svæðinu og er þyrla Landhelgisgæslunnar á leiðinni vestur. Þá er varðskipið Þór á leið frá Ísafirði til að flytja 35 björgunarsveitarmenn á svæðið. Á vef Stundarinnar segir að hugsanlegt sé að snjóflóðavarnir hafi stýrt flóðinu frá byggðinni á Flateyri. Þar kemur fram að talið sé að eitt flóðið hafi farið yfir hluta varnargarðanna og farið alveg að húsi í efstu byggð en þar er fjölskylda búsett.
Á vef Stundarinnar segir að unglingsstúlka hafi verið grafin upp úr snjóflóðinu. Hún hafi verið köld en heil heilsu. Þá segir að hún verði flutt með þyrlu landhelgisgæslunnar til aðhlynningar.