Ungir Sjálfstæðismenn skemmtu sér konunglega á Sambandsþingi SUS sem fram fór á Akureyri í lok september. Birtu þeir myndskeið á Twitter þar sem þeir skelltu sér á Hótel KEA og fóru í vísindaferð í fyrirtæki Samherja þar sem vel fór á með þeim og æðstu stjórnendum fyrirtækisins en Þorsteini Má bregður meðal annars fyrir í myndbandinu.
Greint er frá heimsókninni á vef DV þar sem minnt er á það að vísindaferðir séu eins konar djammferðir með dassi af fróðleik, líkt og það er orðað. Þá bjóða fyrirtækin oft uppá áfengi. Í umfjöllun DV segir:
„Svo virðist því vera sem Ungir Sjálfstæðismenn hafi náð að tengjast einhverjum böndum við Samherjamenn í ferðinni því ekkert hefur heyrst frá þeim vegna Samherjamálsins í kjölfar umfjöllunarinnar um málið.“
Þar er vitnað í eitt tíst af Twitter:
„Algjör þögn um Samherjamálið. Gott að sjá unga, upprennandi Sjálfstæðismenn sem að kunna að þegja um eitt rosalegasta spillingarmál Íslands. Munu taka við flokknum með stæl.“