Ungfrú Úkraína hefur tekið upp vopn

Fegursta kona Úkraínu, það er sigurvegari fegurðarsamkeppninnar, ungrú Úkraína, Anastasiia Lenna, gefur til kynna á Instagram síðu sinni að hún hyggi nú á þáttöku í stríðinu gegn innrásarher Rússa.

Anastasía fylgir þannig fordæmi fjölda frægðafólks Úkraínu en fjöldi þingmanna og annarra núverandi og fyrrverandi stjórnmálamanna hafa tekið upp vopn og berjast gegn innrásarhernum, auk listamanna og íþróttafólks.

Nú síðdegis og undir kvöld hafa nýjar gerfihnattamyndir sýnt fjölmennan flokk rússneskra hermanna nálgast höfuðborgina Kyiv.

Breski miðillinn Guardian metur það svo að rúmlega fimm kílómetra löng röð hermanna og brynvarinna hertrukka eigi um 60 kílómetra ófarna til höfuðborgarinnar með bensín, skotfæri og aðrar vistir.

Fréttablaðið/EPA