Unga fólkið vill koma í veg fyrir fatasóun og saumavélarnar aftur orðnar þarfaþing fyrir heimilin

Vitundarvakning hefur orðið í samfélaginu hvað varðar nýtingu á fatnaði og fólk er farið að nýta sér notaðan fatnað í enn meiri mæli. Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri hjá PFAFF  er ein þeirra sem vill leggja lóð á vogarskálarnar og gera sitt til að sporna gegn fatasóun og er iðin við að kaupa notaðar flíkur og gera þær að sínu.  „Með saumavélinni er hægt að gera nýja flík úr gamalli flík og það er líka hægt að breyta flík eftir sínu höfði,“ segir Margrét sem þegar á nokkrar vandaðar gæða flíkur hún fékk á fatamörkuðum og hefur gert að sínum með góðri útkomu. Það má með sanni segja að tími saumavélanna sé kominn aftur og yngri kynslóðin er búin að uppgötva hversu gott er að geta gripið í saumavélina þegar kemur að því að hanna eða breyta flík og gera flíkina að sinni. Margrét og hennar samstarfsfólk finna á eigin skinni að saumavélin er aftur að verða þarfaþing fyrir heimilin og kemur sterk inn með nýjum og breytum venjum yngri kynslóðarinnar sem vill sporna gegn fatasóun og sjá fjölmörg tækifæri í því að kaupa notaðar flíkur.  „Mér finnst mjög gaman að fara í Extraloppuna og Rauða krossinn og finna mér nýja og vandað flík,“ segir Margrét og er ánægð með hversu öflugir fata- og nytjamarkaðir eru að verða hér á landi.  Missið ekki af áhugaverðu viðtali við Margréti í kvöld.

Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30.