Kröfur fólks um húsnæði í dag, eru allt aðrar en þær voru fyrir einhverjum áratugum síðan. Þá var algengt að fólk byggði sín hús og bjó síðan þar næstu áratugina á eftir.
Þetta er liðin tíð og kröfur unga fólksins eru allt aðrar en kröfur foreldra þeirra eða kröfur afa og ömmu. Unga fólkið vill smærri og hagnýtari eignir og gerir ekki ráð fyrir að eiga heima í sama húsnæði, áratugum saman.
Þetta er meðal þess sem kom fram í nýjasta þætti Afsals, sem Hringbraut endursýndi í gærkvöld en þar komu fram löggiltu fasteignasalarnir Ásdís Valsdóttir og Guðrún Antonsdóttir sem fagna báðar aukinni umræðu stjórnmálamanna á lausnum í húsnæðismálum.
Þær segja báðar mikilvægt að hlustað sé á unga fólkið í þessum efnum, því það er kynslóðin sem þurfi að leggja línurnar fyrir næstu áratugina. Þá segjast þær báðar hrifnar af þeim tillögum sem Kópavogur hefur lagt fram og hafa trú á að Kópavogur verði fyrirmynd fleiri sveitarfélaga, sem munu þreifa fyrir sér með nýjar lausnir sem gætu liðkað til fyrir húsnæðiskaupum.
Afsal er frumsýnt á fimmtudagskvöldum en endursýnt á mánudagskvöldum hér á Hringbraut, en þáttinn má að auki sjá hér á hringbraut.is.