Anna Karen er sjálf 27 ára, hefur lokið háskólanámi og dreymir um að eignast íbúð. Í viðtali við Ara Skúlason, spyr Anna Karen hvort kaupmáttur ungs fólks sé líklegur til að aukast eitthvað í samræmi við hækkun fasteignaverða. Ari segist ekki telja það líklegt. Fasteignaverð muni hækka meira en kaupmáttur og staðan sé því að mörgu leyti erfið fyrir ungt fólk. Það stafi þó ekkert síður að því að framboð lítilla og ódýrra íbúða sé of lítið. Eftir hrun gat nánast enginn keypt, sérstaklega ekki í yngri aldurshópum. Nú sé staðan því þannig að mjög fjölmennur hópur þurfi að kaupa og helst þyrfti að greiða fyrir þessum hópi leið með því að auðvelda þeim fasteignakaupin. Við séum hins vegar enn brennd af því að hafa gert það fyrir hrun. Þá var lánsfé ódýrt og mikið lánað. Ungt fólk átti þarmeð auðveldari með að kaupa sína fyrstu fasteign en reynslan hafi sýnt að margir fóru illa á því.
Ari segir samt að fasteignakaup séu alltaf skynsamlegasti kosturinn fyrir ungt fólk að stefna að, því leigumarkaðurinn sé bæði dýr og óstöðugur. Þannig séu til dæmis lán sem almennt þyki ekki hagstæður kostur, mögulega betri kostur en leiga. Nefnir Ari sem dæmi lán þar sem aðeins eru greiddir vextir. Kosturinn við þessi lán séu þá aukið öryggi sem felst í því að viðkomandi er eins og að ,,leigja hjá sjálfum” sér og þarf ekki að búa við það óöryggi sem almenna leigumarkaðinum fylgir. Að spara og byrja smátt sé hins vegar alltaf langbesti kosturinn. Anna Karen ræðir einnig við Guðrúnu Ólafsdóttur, svæðisstjóra hjá Landsbankanum og spyr hvaða leiðir séu raunhæfar fyrir ungt fólk sem stefnir að því að kaupa sína fyrstu fasteign.
Þáttinn er hægt að nálgast í heild sinni eða að hluta á hiringbraut.is.