Um þriðjungur ungs fólks á aldrinum 13 - 15 ára er mjög sammála eða frekar sammála þeirri fullyrðingu að það tali stundum ensku við íslenskumælandi fólk í aðstæðum þar sem allir skilja og tala íslensku.
Þetta kemur fram í úttekt á vefnum mbl.is, en þar segir að um fjórðungur fólks á aldrinum 16 - 30 ára sé mjög sammála eða frekar sammála sömu fullyrðingu en mjög fátt eldra fólk sé aftur á móti sammála þessari fullyrðingu. Yngstu kynslóðinni þyki einnig ekki eins mikilvægt að vera góður í íslensku eins og þeim sem eldri eru.
Í fréttinni er hér vitnað yfirgripsmikillar málfræðirannsóknar á stöðu íslensku og ensku á Íslandi sem verða kynntar í málstofunni, Stafrænt málsambýli íslensku og ensku, á Hugvísindaþingi á morgun. Rannsóknin beinist að áhrifum stafrænna miðla og snjalltækja, sem gjarnan bjóða upp á gagnvirk samskipti við notendur á ensku, á orðaforða, málkunnáttu og málnotkun Íslendinga og á stöðu og framtíð íslenskunnar. Fimm þúsund Íslendingar frá þriggja ára aldri og upp úr fengu boð um að taka þátt í rannsókninni.
„Þetta eru óvæntar niðurstöður og það kemur á óvart hversu hátt hlutfall þetta er. Við vissum að sumt ungt fólk talar stundum saman á ensku en við áttuðum okkur ekki á því að það gæti verið þriðjungur,“ segir Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild, um enskunotkun við íslenskumælandi fólk. Hún er annar tveggja stjórnenda rannsóknarinnar en hinn er Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði.
Sigríður bendir á að viðhorf til bæði íslensku og ensku gefi dýrmætar upplýsingar um stöðu tungumálsins. Þrátt fyrir að allir aldurshópar séu mjög sammála fullyrðingunni um mikilvægi þess að vera góður í íslensku þá eru það mun færri í yngri aldurshópnum en þeim elstu. Um 53% 13 -15 ára unglinga er mjög sammála því en mun fleiri í elsta aldurshópnum eða 88% þeirra sem eru 61 árs og eldri.
Hlutfallið er jafnara milli aldurshópa þegar spurt er um mikilvægi þess að vera góður í ensku en almennt eru 49% til 65% allra aldurshópa mjög sammála því. 49% elsta aldurshópsins eru mjög sammála því en hlutfallið er hæst í aldurshópnum 16-20 ára þar sem 65% eru sammála fullyrðingunni. Þeir yngstu, 13- 15 ára, telja jafn mikilvægt að vera góður í íslensku og ensku.