Unga fólkið: breytingar, eða við förum

\"Staðreyndin er að unga fólkið er ekki hægt að mata á upplýsingum eins og gömlu flokksblöðin gerðu einatt hér áður fyrr með því að sýna heiminn annað hvort svartan eða hvítan.\"

Svona skrifar kaupmaðurinn Margrét Kristmannsdóttir í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is en pistlar hennar vekja jafnan mikla athygli - og nú fjallar hún gömlu flokkana sem hún segir að séu einfaldlega nauðbeygðir til að taka til í sínum ranni ef þeir ætla að lifa af.  

Hún segir tímana breytta: \"Geðstirðir leiðarahöfundar gömlu fjölmiðlanna með gamaldags áherslur ná einfaldlega ekki til unga fólksins og fátt veldur þeim og þeirra meiri hugarangri en þverrandi völd.\"

Og Margrét minnir ákynslóðabilið: \"Við sem eldri erum erum fyrir löngu orðin of samdauna ástandinu og vonum sífellt að breytingar séu handan við næsta horn. Við þekkjum ekkert annað en að vinna lengur og bera minna út býtum en fólk í nágrannalöndum okkar. Við látum hagsmunaöflin jafnvel telja okkur trú um að akkúrat í þessu ástandi líði okkur best.\"

Breytingin sé þessi: \"Unga fólkið er sem betur fer að rísa upp gagnvart þessu kerfi enda er unga fólkið beittasta vopnið í átt að betra samfélagi. Það gerir kröfur um að lífskjör hér verði með svipuðum hætti og best gerist í nágrannalöndum okkar – að öðrum kosti er það einfaldleg farið.\"