Ung kona varð fyrir áreiti í hlaupatúr á Húsavík

Ung kona á Húsavík segir frá óþæginlegri lífsreynslu sem hún varð fyrir í gærkvöld.

Á milli átta og níu í kvöld var ég úti að hlaupa þegar ég tek eftir manni á fimmtugs eða sextugsaldri vera að stara á mig.

Konunni segir að henni hafi brugðið mjög við atvikið og starði á manninn til baka. Eftir smá tíma ákvað hún að hlaupa af stað aftur.

„Þá heyri ég að hann byrjar að flauta á eftir mér, eins og á eftir hundi. Ég hætti að hlaupa, leit á hann og sá að hann var að biðja mig um að koma til sín."

Konunni leist þá ekki á blikuna og hunsaði manninn og segir að hann hafi horfið stuttu síðar.

Algjörlega óviðeigandi hegðun

Hún deildi þessari reynslu á Facebbok hópnum Húsavík: Fyrr og nú og segist hafa enga þolinmæði fyrir slíku áreiti.

„Mér er alveg sama þótt þessi afi hafi verið drukkinn eða bara skrítinn. Það er niðurlægjandi að lenda í þessu og þessi hegðun er algjörlega óviðeigandi."

Þá segir hún að ef hún verði vitni af eða lendi í þessu aftur sjálf muni hún taka mynd af manninum og birta hana.