Kona á þrítugsaldri, fædd árið 1994, lést á Landspítalanum á þriðjudagsmorgun. Hún var flutt þangað með sjúkrabíl eftir að lögregla hafði haft afskipti af konunni, en lögreglan var kölluð út vegna meintrar fíkniefnaneyslu hennar. Héraðssaksóknari hefur málið nú til rannsóknar.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt RÚV.is hafði lögregla afskipti af konunni, sem var í annarlegu ástandi, og nokkru síðar fór hún í hjartastopp og lést.
Öllum málum þar sem manneskja lætur lífið í tengslum við störf lögreglu er vísað til embættis héraðssaksóknara, óháð því hvort grunur sé til staðar um refsivert brot af hálfu lögreglu.
Rannsókn er nú á frumstigi og enn á eftir að taka vitnaskýrslu af öllum sem voru viðstaddir í aðdraganda og þegar konan lést, þar með talið lögreglumönnum. Lögreglan verst annars frekari fregna.
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sagði í samtali við Fréttablaðið í gærkvöld að málið væri á frumstigi og því litlar upplýsingar hægt að gefa upp. Áhersla yrði lögð á að upplýsa hvað gerðist á þriðjudagsmorgun með sem nákvæmustum hætti.
„Aðaláherslan er á að ná utan um málið og til allra sem geta gefið upplýsingar um það hvað gerðist þarna,“ sagði Ólafur Þór.
Tilkynningin frá lögreglunni í heild sinni:
„Kona á þrítugsaldri lést á Landspítalanum á þriðjudagsmorgni s.l., en þangað hafði hún verið flutt með sjúkrabíl eftir að lögregla, í útkalli vegna meintrar fíkniefnaneyslu, hafði afskipti af henni. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið, en því hefur verið vísað til embættis héraðssaksóknara sem rannsakar atvik þegar maður lætur lífið í tengslum við störf lögreglu óháð því hvort grunur er til staðar um refsivert brot.
Hugur lögreglunnar er hjá aðstandendum konunnar og vill hún koma á framfæri innilegum samúðarkveðjum til þeirra á þessari erfiðu stundu.“