Undrast tvöfeldni atvinnurekenda

"Hækkunin er langleiðina í 90% og jafngildir ein næstum fjórföldum þeim 300 þúsund króna lágmarkslaunum sem mörg verkalýðsfélög ætla að krefjast í komandi kjarasamningum," skrifar Páll Magnússon þáttastjórnandi á Hringbraut og fyrrverandi útvarpsstjóri um þá rausn vinstriflokkanna í Reykjavík að hækka óumbeðnir laun forstjóra Orkuveitunnar úr 1,1 milljón á mánuði í 2,4.


"Ekkert heyrist þó frá Samtökum atvinnulífsins eða Seðlabankanum um að svona launahækkanir stefni stöðugleika efnahagslífsins í hættu, " skrifar hann áfram. "Ef hins vegar þeir lægst launuðu fá meira en 3% hækkun – að ekki sé nú talað um ef þeir rjúka upp í heil 300 þúsund á mánuði – mun fjandinn verða laus og efnahagslíf þjóðarinnar hrökkva af hjörunum," stendur skýrum stöfum í pistli Páls.


"Almennir starfsmenn Orkuveitunnar og aðrir borgarstarfsmenn þurfa þó varla að kvíða," eru áhrínsorð Páls, því fyrst "Samfylkingin, Vinstri grænir og Björt framtíð geta – ótilneydd – hækkað forstjóralaun um 90% hlýtur almúgafólk að geta hugsað sér nokkuð gott til glóðarinnar. Þessir flokkar segjast jú vera sérstakir málsvarar alþýðu manna. Kannski fær þá alþýðan þriðjunginn af prósentuhækkun forstjórans – 30%," spyr Páll að lokum.