Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata segir það vera átakanlegt að hlusta á þvættingin úr munni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra sem sagði á Alþingi í dag að píratar væru stefnulausir.
Orðin féllu í umræðu um afnám verðtryggingarinnar sem framsóknarmenn hafa lofað fyrir kosningar á næsta ári, en þar notaði Birgitta tækifærið til að leiðrétta það sem hún kallaði rangfærslur Sigmundar Davíðs um borgaralaun sem hann viðhafði á nýafstöðnu Viðskiptaþingi: \"Staðreyndin er sú að Píratar hafa ekki mótað stefnu um borgaralaun,\" sagði hún og bætti við að varaþingmaður flokksins hefði einfaldlega lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að skoðað væri hvernig hægt væri að tryggja landsmönnum skilyrðislausa grunnframfærslu.
Sigmundur Davíð byrjaði ræðu sína á að gagnrýna Pírata og sagði þá stefnulausa en hann svaraði ekki spurningunni um afnám verðtryggingarinnar: \"Akkúrat þegar maður hélt að loksins væri komið eitthvað mál frá pírötum þar sem þeir væru að skýra stefnu eða boða stefnu þá kemur á daginn að svo er ekki. Þetta er ekki stefna, þetta er bara til skoðunar. Það á bara að kanna hvort hungsanlega sé þetta sniðugt, þannig að enn bíðum við eftir fyrsta stefnumálinu frá Pírötum,“ sagði hann.
Birgitta svaraði og sagði: \"Það er átakalegt að hlusta á þvættingin úr munni forsætisráðherra.“ Spurði hún þá einnig út í gang afnáms hafta og húsnæðisfrumvörp félags- og húsnæðismálaráðherra. Sigmundur sagði að þau mál gengju ljómandi vel.