Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra - og raunar einnig fyrrum ritstjóri segir fjölmiðla hafa fallið á prófinu þegar kom að umfjöllun forsætisráðherra um nýgerða búvörusamninga. Andmæli ráðherrans við gagnrýni forseta ASÍ á samningana kalli á fjölda spurninga sem enn sé ósvarað.
Í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is undrast hann að nú viku seinna hefur enginn fjölmiðill litið svo á að þjónustuhlutverk hans við lesendur eða hlustendur kallaði á að leita hér svara, svo sem að spyrja út í þá staðhæfingu forsætisráðherra að öll gagnrýni á búvörusamningana jafngildi árás á bændur. Þorsteinn spyr í því ljósi hvort talsmenn launafólks verði sjálfkrafa að óvinum bænda ef þeir gera athugasemdir við efni samninganna - og hvort bændur séu þá jafnan óvinir launafólks þegar hagsmunir neytenda og framleiðenda togast á? Telja bændur slíkan málflutning stjórnmálamanna sér til framdráttar, spyr Þorsteinn.
Hann undrast stórum allan óvinafagnað forsætisráðherra í þessum efnum - og snýr í pistli sínum staðhæfingum hans á alla kanta: \"Forsætisráðherra hélt því fram að búvörusamningarnir væru kjarasamningar eða að minnsta kosti ígildi þeirra. Skilja mátti að fyrir þá sök væri óviðeigandi að forystumenn annarra launþega gagnrýndu niðurstöðu samninganna,\" skrifar Þorsteinn og heldur áfram: \"Fram til þessa hafa flestir litið á bændur sem sjálfstæða framleiðendur. Eðlilega þarf því að spyrja: Hvenær urðu þeir launþegar? Hvenær urðu þeir ríkisstarfsmenn,\" spyr Þorsteinn og skilur ekki sem fyrr af hverju fjölmiðlamenn inna hér ekki ráðherrann eftir útskýringum.
\"Ef bændur eru launþegar eftir allt,\" heldur hann áfram \"og búvörusamningarnir eru ígildi kjarasamninga hljóta aðrar spurningar óhjákvæmilega að vakna: Hvers vegna fá bændur einir verðtryggðan kjarasamning? Hvers vegna hafa þeir tíu ára uppsagnarfrest þegar aðrir launþegar hafa flestir þriggja mánaða uppsagnarfrest? Þarf ekki að skýra það út fyrir launafólki,\" spyr Þorsteinn enn.
Hann bendir á að forsætisráðherra hafi ennfremur gefið til kynna að markmiðið með innflutningshindrunum og styrkjum væri að koma í veg fyrir að bændur og verkafólk í afurðastöðvum missti vinnuna til fólks með lægri laun í útlöndum. Skilja megi á orðum hans að forystumenn launafólks stæðu ekki vörð um hagsmuni eigin skjólstæðinga ef þeir fylgdu ekki þessari pólitík.
\"Gefum okkur að þetta séu gildar málsástæður, \"skrifar Þorsteinn og spyr svo: \"Þýðir þetta að rök standi til þess að gefa innflutning á landbúnaðarvörum frjálsan frá löndum þar sem laun bænda og verkafólks eru jafn há eða hærri en á Íslandi? Mega forystumenn launafólks berjast fyrir því án þess að teljast vera óvinir bænda?\"
Hann segir að síðan megi spyrja: \"Eigi þessi röksemd við landbúnaðarafurðir á hún ekki eins við um aðrar framleiðsluvörur? Hvar liggja mörkin? Auðvelt er til að mynda að búa til mörg störf við fataframleiðslu og skóframleiðslu og greiða tiltölulega góð laun með því að banna innflutning og nota peninga skattborgaranna til að greiða niður útsöluverðið.\"
Og spurningar Þorsteins eru nánast óendanlegar: \"Eru forystumenn Alþýðusambandsins óvinir iðnverkafólks af því að þeir berjast ekki fyrir höftum á iðnaðarvörur og niðurgreiðslu á útsöluverði þeirra? Telja bændur að þessi málflutningur sé í þeirra þágu,\" spyr forveri Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í Stjórnarráðinu.
Pistilinn má sjá í heild sinni í pistladálkinum gægra megin á forsíðu vefjarins.