Fundahöld ríkisstjórnarinnar komu til umræðu síðsumars eftir að RÚV birti um það frétt 11. ágúst að 35 dagar væru liðnir frá síðasta fundi ríkisstjórnarinnar. Þá hafði enginn fundur verið settur á dagskrá en þremur dögum síðar var ríkisstjórnin kölluð saman til fundar. Hann var haldinn vegna þeirrar óvissu sem kom upp vegna innflutningsbanns Rússa á íslenskar sjávarafurðir.
Í frétt RÚV í ágúst var stuðst við yfirlit ríkisstjórnarfunda sem er aðgengilegt á vef forsætisráðuneytisins og nær aftur til ársins 2009. Samkvæmt því leið mest 31 dagur milli ríkisstjórnarfunda í fyrra og mest tvær vikur sumarið 2013 þegar ríkisstjórnin tók við völdum. Fyrri ríkisstjórn hélt alla jafna fundi vikulega árin 2009, 2010 og 2012 en sumarið 2011 liðu mest tæpar tvær vikur milli funda ríkisstjórnar.