"Ég hef oft velt því fyrir mér hver ástæða þess er að Íslendingar hafa almennt verið frekar áhugalausir um öryggismál og talið að hér væri allt með ró og spekt og að ekki væri óvinur í augsýn," skrifar Valgerður Sverrisdóttir fyrrverandi utanríkisráðherra í nýjum pistli sínum um þjóðaröryggismál á hringbraut.is.
Hún spyr: "Getur verið að sú staðreynd að seinni heimsstyrjöldin leiddi ekki hörmungar yfir þjóðina eins og nágrannaþjóðir okkar hafi haft þessi áhrif? Segja má að heimstyrjöldin síðari hafi haft þveröfug áhrif hér á landi með erlendu fjármagni sem kom inn í landið og gríðarlegum framkvæmdum."
Hún rifjar upp að það hafi verið á hennar vakt að Bandaríkjaher kvaddi Miðnesheiði, pakkaði saman og fór: ""Sá atburður átti sér stað í minni tíð sem utanríkisráðherra og var aðdragandinn stuttur. Segja má að Bandaríkin hafi lýst einhliða yfir að stöðin væri lögð niður," skrifar hún en minnir um leið á þá staðreynd að herverndarsamningur Bandaríkjanna frá 1941 sé ennþá í gildi hér á landi þótt herstöðin á Miðnesheiði hafi verið aflögð.
Í pistli sínum fagnar þessi fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins nýrri skýrslu um þverpólitíska þjóðaröryggistefnu sem hún telur afar brýna fyrir Íslendinga sem hljóti að þurfa að huga að vörnum sínum og öryggi eins og allar aðrar þjóðir. Þar sé til dæmis loftrýmiseftirlit mjög mikilvægur þáttur, segir hún og minnir á að Keflavíkurflugvöllur sé ennþá öryggissvæði í hernaðarlegum skilningi: "Það er gott til þess að vita að andstæðingar Atlantshafsbandalagsins hafa ekki agnúast út í þessa starfsemi svo ég hafi orðið vör við," skrifar hún.
Hún segir um nýju þjóðaröryggisskýrsluna að þar sé þjóðaröryggi skilgreint með víðtækum hætti. Til samræmingar á milli ráðuneyta sé talið mikilvægt að stofnað verði þjóðaröryggisráð sem forsætisráðherra veiti forstöðu. Hlutverkið verði að meta reglulega ástand og horfur og hafa eftirlit með framfylgd þjóðaröryggisstefnunnar. "Ég lýsi ánægju með þá vinnu sem farið hefur fram í tengslum við mótun þjóðaröryggisstefnu og vona að meiri sátt muni ríkja um málið en oft hefur verið þegar öryggis- og varnarmál hafa verið til umræðu," skrifar valgerður að lokum í pistli sínum sem sjá má í heild sinni í pistladálkinum hægra megin á forsíðunni á hringbraut.is.