Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri vefmiðilsins Kjarnans undrast gott aðgengi þjóðkunnra fanga á Kvíabryggju að völdum fjölmiðlum á Íslandi sem birti ekki einasta við þá viðtöl heldur hampi jafnvel sjónarmiðum þeirra á lofti í viðhorfspistlum.
Þetta kom fram í máli Þórðar Snæs í Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld, en aðspurður hvaða fjölmiðla hann ætti við sagði hann augljóst mál vera við hverja hann ætti. Rétt er þó að taka fram að þátturinn var tekinn upp áður en umtalað viðtal birtist við Al-Thani-fangana á Stöð 2 í gærkvöld.
Þórður Snær sagði í Ritstjórunum að landsmenn hefðu í máli fanganna heyrt aðeins eina hlið til þessa og vægast sagt mikið af henni í völdum fjölmiðlum sem dæmdir fangar virtust hafa mikið aðgengi að til að koma á framfæri umkvörtunum sínum gagnvart samsærum sem þeir eru að verða fyrir af ýmsum stofnunum samfélagsins ... \"eiginlega all flestum stofnunum samfélagsins að þeirra mati,\" eins og Þórður Snær orðaði það og bætti við. \"... hvort heldur sem það eru Fangelsismálastofnun, dómstólar, ákæruvald, rannsóknaraðilar eða bara almenningur yfir höfuð ...\"
Hvað áttu við með völdum fjölmiðlum, spurði þáttastjórnandi þessu næst: \"Ég á bara við það að það eru ákveðin fjölmiðlafyrirtæki á einkamarkaði sem veita þessum aðilum miklu meira aðgengi með umkvartanir sínar og lýsa því mjög skýrt yfir í skoðanaskrifum að þeir taki undir það að þessir aðilar séu fórnarlömb dómsmorða og það að réttarríkið sé ekki lengur til á Íslandi,\" svaraði Þórðir Snær.
Þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar, en einnig er að finna styttri klippur úr honum inni á hringbraut.is.