„undirstaða velferðar og efnahagslegrar hagsældar“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði ráðstefnu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, um framtíð vinnunnar sem haldin er í Hörpu í tengslum við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Forsætisráðherra sagði Norðurlöndin fyrirmynd annarra landa hvað varðar háa atvinnuþátttöku kvenna og að ýmsar aðgerðir hafi aukið sveigjanleika vinnumarkaðarins:

„Á Íslandi hefur sterk kvennahreyfing og öflugt samstarf stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins tryggt mikla atvinnuþátttöku kvenna sem er undirstaða velferðar og efnahagslegrar hagsældar“, sagði forsætisráðherra. Á vef Stjórnarráðsins kemur einnig fram:

„Þá sagði hún að mikilvægt væri að ríki heims næðu árangri í jafnréttismálum og tryggðu að jöfn laun væru greidd fyrir jafn verðmæt störf, líkt og samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar frá árinu 1951 gerði ráð fyrir. Íslensk stjórnvöld leggi áherslu á jafnrétti kynjanna og stefni að því að uppræta kynbundinn launamun fyrir árið 2022. Forsætisráðherra sagði að með samþykkt laga um jafnlaunavottun hefði Ísland skipað sér í forystu landa sem á undanförnum árum hefðu kynnt nýjar lausnir í stefnumótun um framfylgd samþykktar ILO um jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf. Þessar lausnir feli í sér náið samstarf við samtök aðila vinnumarkaðarins og aukna ábyrgð vinnustaða og atvinnurekenda á aðgerðum gegn launamun kynjanna.

Ráðstefnan fjallar um þróun vinnunnar við örar tæknibreytingar, áhrif þeirra á norræna velferðarmódelið og jafnrétti á vinnumarkaði. Alþjóðavinnumálastofnunin (International Labour Organization, ILO) hóf störf í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar árið 1919 og fagnar því aldarafmæli á þessu ári. Í tilefni afmælisins hefur stofnunin birt skýrslur um nauðsynlegar aðgerðir aðildarríkjanna til að mæta breytingum á vinnumarkaði þar sem m.a. er mælt með að þjóðir heims innleiði umbætur sem auki atvinnuþátttöku kvenna, fjárfesti í fæðingarorlofi og vinni gegn frekari kynjaskiptingu starfa.“