Undirskriftasöfnun kára slær metið

75 þúsund manna markinu er náð í undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar fyrir eflingu heilbrigðiskerfisins, en það náðist á þriðja tímanum í gær. Söfnun Kára er því orðin sú fjölmennustu í sögu lýðveldisins.

Söfnunin hefur staðið yfir frá 22. janúar og hefur Kári lýst því yfir að hún muni vara í átta vikur. Nú þegar hefur hún skákað

 undirskriftasöfnun gegn hryðjuverkalögum Bretlands og flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri sem voru lengi vel þær fjölmennustu hér á landi.

 

 

Í undirskriftasöfnuninni sem Kári stendur fyrir er þess krafist að 11% af vergri landsframleiðslu verði varið í rekstur heilbrigðiskerfisins.