Undirskriftasöfnun fyrir sigrúnu

Auknar líkur virðast á því að Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug- og félagsvísindastofnunar Háskólans á Akureyri, fari fram til embættis Forseta Íslands.

Í bréfi sem sent var starfsmönnum Háskólans á Akureyri sl. sunnudag segir einn stuðningsmanna Sigrúnar að þrír starfsmenn séu nú að safna undirskriftum henni til stuðnings.

Sigrún upplýsti í blaðaviðtali fyrir nokkrum vikum að hún væri að velta fyrir sér að fara fram.

Þá hefur bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn, sagt að hann sé að skoða forsetaframboð alvarlega.

Það gæti því farið svo að tveir þekktir Akureyringar bjóði sig fram. Margrét Blöndal fjölmiðlakona mun hafa tilkynnt sínum vinnuveitanda að hún falist eftir tímabundnu fríi frá fjölmiðlastörfum þar sem hún ætli sér að vinna að kosningabaráttu fyrir tiltekinn aðila en ekki liggur enn fyrir hver sá aðili er.

Andri Snær Magnason rithöfundur tilkynnti sl. mánudag að hann ætlaði sér að taka slaginn. Er hans herferð hafin með heimsóknum um landið. Katrín Bessadóttir blaðamaður hefur fengið tímabundið frí frá störfum sem blaðamaður á Fréttatímanum en hún verður upplýsingafulltrúi Andra Snæs. Grímur Atlason verður kosningastjóri.

Til tíðinda gæti dregið á næstu dögum ef Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur tekur slaginn. Í nýlegu viðtali við Hringbraut sagði Guðni að ákvörðun um þau mál yrði æ léttari því hann fyndi fyrir svo miklum stuðningi.