Agnes Bragadóttir skrifar langa grein í Morgunblaðið í dag. Þar talar hún mest við nafnlausan þingmann, eða kannski þingmenn, Sjálfstæðisflokksins og einn þingmann Framsóknarflokks. Viðmælandinn frá Sjálfstæðisflokki, eða einn þeirra segir:
„Ég skil ekki hvað forsetinn er að hugsa. Er hann hugsanlega og meðvitað að leggja drög að því að hér verði stjórnarkreppa? Mér finnst það áleitin spurning, því í stað þess að gera það sem augljóst er, að afhenda Bjarna umboðið, dregur hann lappirnar, án þess að nokkur augljós skýring sé á því.“
Sjálf skrifar Agnes í upphafi skrifa sinna: „Það vefst fyrir mörgum að skilja hvað er svona flókið fyrir Guðna Th. Jóhannesson, forseta Ísland, að afhenda augljósum sigurvegara kosninganna nú um helgina, Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, stjórnarmyndunarumboðið.“
Sem kunnugt er vill Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar fá umboð til stjórnarmyndunnar. Í skrifum Agnesar segir þetta um vilja Beendikts:
„Þingmenn sem rætt var við í gær töldu að Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, hefði sýnt af sér taumlausa valdagræðgi þegar hann lagði það til við forsetann að hann fengi umboð til stjórnarmyndunar. Það væri í besta falli ósmekkleg frekja hjá nýgræðingi á Alþingi í sjö manna þingflokki að ætlast til þess að fá umboðið og í versta falli valdagræðgi.“
Af þessu má marka að taugatringur sé innan Sjálfstæðisflokksins. Ótti um að flokkurinn komist ekki, þrátt fyrir úrslit kosninganna, í ríkisstjórn.
-sme