Undirbúa kínverskt álver í húnaþingi

Klappir Development ehf. og China Nonferrous Metal Industry´s Foreign Engineering and Construction (NFC) undirrituðu í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis í gær viljayfirlýsingu um fjármögnun byggingar 120.000 tonna álvers á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Hafursstaði í Skagabyggð.

Klappir og kínverska stórfyrirtækið vinna um þessar mundir í sameiningu að hagkvæmnisathugun vegna byggingar og reksturs fyrirhugaðs álvers, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsvarsmönnum Klappa. Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður rúmir 100 milljarðar króna (780 milljónir Bandaríkjadala). Áætlanir gera ráð fyrir 240 varanlegum störfum í álveri Klappa og allt að 800 tímabundnum störfum á byggartíma.

„Þetta er mikilvægur áfangi í undirbúningsferlinu. Klappir og sveitarfélögin á Norðurlandi vestra fagna því að jafn öflugur og traustur aðili og NFC skuldbindi sig til þáttöku í þróun verkefnisins. Framboð á nauðsynlegri orku mun ráða því hvenær hægt verður að hefja rekstur álvers að Hafursstöðum,“ segir Ingvar U. Skúlason, framkvæmdastjóri Klappa Development.

Viljayfirlýsingin sem var undirrituð í gær byggir m.a. á samstarfssamningi á milli sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og Klappa Development, en þar hafa Sveitarfélagið Skagafjörður og Húnaþing vestra ákveðið að starfa með Blönduósbæ, Húnavatnshreppi, Sveitarfélaginu Skagaströnd og Skagabyggð, sem áður höfðu undirritað samstarfssamning við Klappir um uppbyggingu og rekstur álvers að Hafursstöðum.

Í viljayfirlýsingunni á milli Klappa Development og NFC er kínverska samstarfsaðilanum falin svokölluð „alframkvæmd“ (e. turnkey) verkefnisins. Samkvæmt yfirlýsingunni ábyrgist NFC fjármögnun a.m.k. 70% kostnaðar við framkvæmdina og uppbyggingu innviða í gegnum kínverska eða aðra banka, auk þess að ábyrgjast byggingu allra mannvirkja sem og rekstur álversins á meðan uppkeyrslu þess stendur.