Nína dögg undirbjó sig á vogi

Leikritið Fólk, staðir, hlutir var  nýlega frumsýnt á litla sviði Borgarleihússins í samstarfið við Vesturport og Þjóðleikhúsið í Osló.

Nína Dögg Filippusdóttir leikur aðalhlutverkið, leikkonuna Emmu sem er alkóhólisti og lyfjafíkill og sem fellst loks á að fara í afvötnum á meðferðarstofnun.

Nína ræddi við Lindu á Þjóðbraut, fimmtudaginn 26.apríl

Í samtalinu minnist Nína á þá hundruði sem eru á biðlista til að komast í meðferð við fíkn – og Nína segist hafa skilið af heimsókn sinni á Vog og á Vík, eftirmeðferðarheimili fyrir konur, hve ólík andlit eru á bak við sjúklingana.

 

Líkt og með margar fyrri sýningar Vesturports leikstýrir Gísli Örn Garðarsson.  Borgarleikhúsið er þarna enn á ný í samstarfi við Vesturport en núna einnig Þjóðleikhúsið í Osló þar sem sýningin er á fjölunum í leikstjórn Gísla Arnar.

Verkið er nýtt eftir breska leikskáldið og leikstjórann Duncan Macmillan.

Sýningin og ekki síst Nína Dögg hefur fengið gríðarlega góða dóma. Hluverkið er mjög krefjandi og er Nína stanslaust á sviðinu í meira en tvo klukkutíma eða í öllum senum verksins. Talað er um bestu frammistöðu leikara á árinu og fleira.